Ađalvalmynd

Bloggers

Auglýsing

Könnun

á ađ skella sér á fiskidaginn?

Útvarpstöđvar

ýmislegt

Tónskólar

íslenskar Hljómsveitir

Hljóđfćraverslanir

Erlendar Hljómsveitir

Leikur dagsins

Leit

Blog central er búiđ ađ gera ţađ gott..Hrefna Katrín Björgvinsdóttir

eins og fyrirsögnin segir þá er blog.central búið að gera það gott. Mér finnst alveg óþolandi alltaf þessar breytingar og erfiðleikar að komast inn á síðurnar þannig ég opna þess bara aftur eftir 2 ára hlé ;)

Það er annars bara allt rólegt að frétt,lífið heldur áfram sinn vangang :) Ég stefni á að hætta á frystó annað hvort í maí eða þegar sumarlokunin verður. hvað ég ætla gera veit nú engin! það kemur í ljós! ég veit ég verð bara hætta... :S
páskafríið framundan og margir að fara erlendis eða í ferðalög. ég ætla mér annað hvort alla leið í borg óttans eða þá yfir á partý pleisið sigló ;)

hef svo sem voðalega lítð að segja annað en að ég ætla bæta inn einhverjum mydum ;)

l8ter :)

(8) tonight i'm gonna have myself a real goodtime (8)Hrefna Katrín Björgvinsdóttir

Nú er helgin senn á enda! Ég get ekki kvartað um það að hún hafi verið leiðinleg...
Daði kom á fimmtudaginn bara allt í einu,upp úr þurr. hann þarf semsagt að fara vinna í göngunum ólafsfjarðar meginn. En allaveganna föstudagurinn var rólegur ég var aðalega að hjálpa daða að þvo og svoleiðis. Laugardagurinn stóð upp úr! Við karen vorum að vinna fyrir Fjörfisk á Fiskideginum Mikla á dalvík. Byrjuðum kl 9 um morguninn við það að setja allt upp og græja svo var byrjað að grilla um 11 leitið,sem var bara ógisslega gaman :P við áttum að hætta um 12 leitið en einhvern vegin enduðum við í því að baka saltfiskvöfflur!! vorum að því til 3 og þá var haldið heim. ég náði að draga hana kareni með til dalvíkur um kvöldið,fórum með síssu og esteri :) geðveikt gaman að hitta esteri eftir svona langan tíma!! Bærinn var PAKKAÐUR af fólki!! það var allsstaðar fólk sem maður fór!! við horfðum á flugelda sýninguna,svo svona klukkutíma eða 2 þá fór karen síssa og ester heim.en ég ákvað að vera lengur. Það var svo gaman að hitta allt liðið eftir svona langan tíma! allir nýkomnir heim frá Benedorm,vel sólbrendir og sætir! :D svo sá ég hana siggu mína,Hún er komin með smá Bumbu! WOW hvað ég get ekki beðið eftir þvi að litli bumbubúin komi í heiminn! :D
en allaveganna ég hitti á öddu og var bara með henni meira og minna allt kvöldið :) æji það var svo skrautlegt að sjá fólkið þegar var farið að líða undir morgun! :P fólk hér og þar með kassagitar að reyna syngja eithvað sem átti að líkjast lagi! var samt einn og einn sem voru alveg að standa sig! :) En ég verð að segja eins og er ég get eiginlega ekki beðið eftir þvi að byrja vinna! ég er búin að vera heima í 3 vikur og gera nákvæmlega ekki neitt!! jújú það var verlsó og fiskidagurinn en that's all! kanski maður skelli sér suður á menningarnótt og kveðji Jónínu vinkonu í leiðinni. Hún fékk inngöngu í skóla útí DK og hún er að fara þangað strax eftir menningar nótt! hún á eftir að brillera þarna úti án efa!


En ég er farin að reyna grinka á þessu rusli hérna heima og hleypa hundinum inn!! Þangað til næst verið góð við allt og alla,því þá gengur allt svo miklu betur!

Lag bloggsins: Don't Stop me Now - Queen

Fiskidagurinn framundan.Hrefna Katrín Björgvinsdóttir

jæja núna sit ég hérna í stólnum mínum við tölvuna mina og er hugsa það hvaða fréttir ég eigi að færa.. hmm það er svo sem voðalega fátt búið að gerast. Það gerist aldrei neitt á óló. það er alveg ótrúleg hvað það er allt dautt hérna! meina vinir daða voru að byrja að vinna hérna og strax á fyrsta kvöldi voru þeir farnir að hata staðinn!
en allaveganna fiskidagurinn á morgun og margt til þess að hlakka til :)
Við karen verðum á risagrillinu fyrir samherja að grilla eithvað gómsætt (vonandi) svo er aldrei að vita hvað maður gerir um kvöldið,hvort maður skelli sér á ball,bakaríið eða bara vera heima. MEINA maður er nú ein heima og á maður ekki að njóta þess á meðan maður getur! Djamm sumarsins er sko langt frá því að verða búið.Menningarnóttinn er eftir :p bíð spennt eftir henni! ;)

Hvað stóð annars uppúr sumrinu hjá ykkur?

það var ekkert eitt sem stóð upp úr hjá mér. sumrið sem slíkt stendur upp úr :) vona að veturinn verði ekkert síðri :)

en ég ætla að láta mig hverfa enda vona á kæju vinkonu þá og þegar ;)

adios Aimgo/Amiga

MYNDIR!!!Hrefna Katrín Björgvinsdóttir

JÆJA!! Ég er búin að setja inn slatta af myndum! Bæði frá versló 2006,sjómannadags helginni 2006 og landslags myndir..sem voru teknar í kringum versló. það munu koma fleiri myndir á næstu dögum. En þannig er það bara að kortið mitt gengur ekki að tölvuni,myndavelinni minni var stolið svo það er svoltið erfitt að koma myndum í tölvuna...þarf einhvern vegin að redda mér fari bara inn á ak og kaupa mér "millistkikki" til þess að tengja við! þá koma spánar myndirnar! uu einhverjar djamm myndir og fleiri landslags myndir! :P jájájá já mér finnst gaman að taka myndir af landslaginu..i mean i'm just proud of my country! ;) icelandic viking!

en læt þetta gott heita í bili.. ætla skella mér í bælið.. en lag bloggsings er : Just for a Secound gert af Akranesingunu, (tónvinnsluskóla þorvaldar Bjarna) ;)
GÓÐA NÓTT!!! ;)

!"#$%&/()=Ö_!!!!"!##$Hrefna Katrín Björgvinsdóttir

ÆJI WOW ÉG VEIT EKKI HVAÐ DILIOIÐ ER MEÐ ÞETTA ONLINE GAMBLING DRASL SEM ER ALLTAF AÐ RYÐJAST INN Á COMMENTINN OG GESTABÓKINA!!! GIVE ME A BRAKE!!!!! en annars.. kem með blogg sennilga bara á næstu dögum.. þarf að klára dagskrána.. okey ég veit að ég er ekki buin að blogga almennilega siðan ég fór út.. en eins og ég sagði ég þarf að klára dagskrána og komast að því hvað er næst á dagskrá svo ég geti komið með einhverjar almennilega fréttir.. en eitt get ég sagt ykkur.. einhver lúði stal jakkanum mínum og myndavélinni minni!!! svona gerist um verlsó..er samt ekki sátt..það voru magnaðar myndir sem ég var búin að taka um helgina! ég fékk samt nokkrar myndir að "láni" hjá kæju svo nok your self out! ;) ég er farin að setja þær inn...

adios amigo/amiga

Sóli Guli.....Hrefna Katrín Björgvinsdóttir

Ég ætla að tala bara hreint út,því best er að allt sé sagt í hreinskilni og sannleika frekar en að reyna fegra hlutina og segja þá óljóst.Klukkan er rúmlega 3 að nóttu til,ég var farin að sofa búin að koma mér vel fyrir. Enn eins og alltaf á næturnar þá fer ég að hugsa,í þetta skiptið reyndar eins og undanfarnar nætur fór ég að hugsa um það afhverju líður mér svona. Það er einhver ástæða. Heilbrigð manneskja hugsar ekki svona eða líður oftast ekki svona.Ég hugsaði djúpt,"kafaði" lengra en síðast liðin 4 ár.En þannig er það að þegar ég var lítil bjuggum við í þessu ágætlega stóra einbýlis húsi.Ég elska þann stað útaf lífinu og mun alltaf gera,þarna mun mér alltaf líða heima.Sennilega út af því að þaðan hef ég ekkert nema góðar,fallegar minningar um mig,fjölskyldu mína,vini og ættingja.Þarna leið mér vel,þangað til 2 seinustu árin sem ég bjó þar. Þá var ég á aldrinum 15 til 17 ára,það var líka þá sem ég fór að gera mér aðeins grein fyrir því hvað var búið að vera í gangi öll þessi ár.Enn ég hafði húsið,það var góði andin og minningarnar út um allt sem sennilega lét mér líða svona vel. Svo kom það,við þurftum að flytja. Fá einum mánuðum áður en við fluttum var mikið búið að ganga á,bæði í fjölskylduni og einnig hjá mér persónulega,hlutur sem ég var ein að kljást við og geri enþann daginn í dag.Það var líka þá sem þetta byrjaði,sem mér fór að líða svona. Enn það leið að því að við fluttum,ég tók sama sem engan þátt í fluttningunum.Ég fór aldrei að skoða húsið með foreldrum mínum áður en við fluttum,ég neitaði því.Dagurinn sem við fluttum var dagin sem ég breyttist úr barni/ungling í Fullorðinn/ungling.Barnæskan mín var farin,skilin eftir fyrir hin börnin sem áttu eftir að þroskast og dafna í gamla húsinu mínu.Erfiðleikarnir voru bara rétt að byrja hjá mér.Í þessu húsi hefur mér aldrei liðið vel,ég man ekki eftir einum degi þar sem mér hefur liðið vel í samfleytt 2 tíma. Einu sinni ekki um jólin þegar öll fjölskyldan er saman. Rótin að þessu.ég veit hvar hún er.Það er hlutur sem ég get ekki lagað,en sá sem getur lagað þetta neitar að gera það,segist ekki geta það. Enn það eru fleiri en ein rót að þessu,hlutur sem ég verð að ná af bakinu af mér,hlutur sem ég verð að læra að lifa með.því ef ég læri ekki að lifa með því,lifi ég allt mitt líf á þessu augnabliki. Ég mun þá bara lifa í fortíðinni.Málið er bara hvernig get ég hugsað um eithvað annað þegar það eru endalausir hlutir sem minna mann á þetta,ástandið er samt svona enþann dagin í dag,"illiandinn"(leyfist mér að kalla hlutinn það) er nú bara hinum megin við vegginn.Þessi andinn mun frá og með deginum sem það var ákveðið að við skyldum flytja vera fastur í þessu húsi. Sennilega getur enginn annar en ég séð hvað hann er slæmur,hvað hann eitrar og drepur frá sér. Hann drepur allavegana alla ást,kærleik og umhyggju í mínu brjósti. Mér líður stundum eins og brúðu sem maður stingur hendinni inn í og hreyfir munin og hendurnar. ég er gjörsamlega tóm,það er einhver annar sem talar og hreyfir mig.Ég er bara gjörsamlega búin á því,ég verð að fá hlé. það að skreppa aðeins til spánar eða reykjavíkur er ekki nóg.Ég hef komist að því. Hvað get ég þá gert? hvað er hægt að gera? Á ég að slíta mig alfarið frá þessum hlut?? Nú spyr ég ykkur því ég get einfaldlega ekki meira.

CampingHrefna Katrín Björgvinsdóttir

Svo þetta ætlar að vera svona. Það verður þá bara að hafa það. ég ætla samt ekki að hætta eða byrja með nýja blogg síðu. mér finnst gaman að blogga og skrifa eithvað bull sem kemur upp i hausinn á mér.
Reyndar hefur ekki mikið nýtt bull komið síðastliðnu daga,þar sem hausinn á mér er búin að vera fullur af kvefi. Þetta er búið að vera mjög einkennilegt,eða það var það þangað til ég fór til doksa,ég var búin að vera með kvef í ca 2 daga,en ég var búin að vera með svima og ógleði í lengri tíma. Eitt kvöldið gat ég ekki staðið upp úr rúminu mínu því ég fékk svo mikin verk fyrir hjartað. Ég hef áður farið til læknis út af hjarta vandamálum en sem betur fer kom þetta því ekkert við. ég fór til læknis dagin eftir og hvað haldiði!!! ég er með svona rosalega vöðvabólgu OG ég er enþá að ná mér af EINKIRNINGSSÓTTINNI sem ég fékk fyrir 14 mánuðum nákvæmlega. þetta er nú meiri andskotinn.

En yfir í eithvað skemmtilegra :) ég var að fara í gegnum tjald dótið mitt í gær,tjaldaði tjaldinu mínu í fyrsta skiptið eftir versló í fyrra,bara svona sjá hvort að það væri allt í lagi með það. og það kom í ljós að það er allt í besta lagi með. ég var sem betur fer ekki eins lengi að tjalda því núna eins og ég var í fyrra. Í fyrr tók það okkur meira  en 2 tíma! ég held ég hafi sjaldan verið eins pirruð og þá! þetta er ekkert smá tjald og það er bara ekki hægt að tjalda því ein. Þannig Karen ætlaði að hjálpa mér en í staðin stóð hún og hló af mér hvað ég var pirruð og bölvandi! það endaði með því að ég sagði henni bara standa til hliðar og ég gæti gert þetta alveg sjálf,sem ég gat ekki. Mamma kom til bjargar og hjálpaði mér. en ég fékk mér verðskuldaðan bjór strax eftir á :D

Svo nú í ár mun ég vera klárari og tek mér bara 1 og hálfan tíma í það tjalda :D hehe good luck :P 
já svo auðvitað strax eftir versló er fiskidagurinn :) jjíha!!!

Ég vona að ég heyri í sem flestum fljótlega,góða skemmtun í sumarfríinu. ;)

kv.Bóbó ;)

Smá "kviss" í gangi :)Hrefna Katrín Björgvinsdóttir

Jæja loksins komið að smá leik :) ég fékk þetta að "láni" hjá henni síssu vinkonu og bætti aðeins við þetta. það sem er ( ) kemur alveg frá mér:D ahh ég er svo stolt af mér hvað ég get verið dugleg :) verið svo "aktív"

[ ] talað við mig
[ ] elskað mig

[ ] kysst mig
[ ] rifist við mig
[ ] öskrað á mig
[ ] hlegið af vitleysuni í mér
[ ] grátið útaf mér
[ ] sært mig
[ ] verið særð/ur útaf mér
[ ] gist með mér
[ ] baktalað mig
[ ] logið af mér
[ ] móðgað mig
[ ] knúsað mig
[ ] hatað mig
[ ] slegið mig
[ ] liðið eins og ég hataði þig
[ ] vorkennt mér
[ ] kitlað mig
[ ] fengið fiðring í magann útaf mér
[ ] tekið mönun frá mér
[ ] manað mig
[ ] elskar eða saknar mín ákkurat núna
[ ] saknað mín
( )Farið á Fyllerí með mér
( )Farið til útlanda með mér
( )Öfundað mig
( )Dáðst af mér
( )Verið stolt/ur af mér
( )Skammast þín fyrir mig
( )Botnað ekkert í mér
( )Finnst þér ég vera of með mig
( ) viljað vera ég
( )Finnst þér ég hugsa illa til þín
( ) Finnst þér ég ganga of langt
( ) týnt mér
( ) óskað þess að týna mér
held að það sé komið í bili góða skemmtun :P :D 

ţegar ég sé ţig heyrist fulgasöngur,birta um líkur ţig... ćji fockit heim ađ ríđa? ;)Hrefna Katrín Björgvinsdóttir

Jæja gott fólk. því miður get ég ekki sett inn neinar myndir alveg strax,eithvað vesen með myndavélina og ég á enþá eftir að semja ferðabloggið. Það er allt í vinnslu en tekur frekar langan tíma. Það er alltaf eithvað fólk að trufla mann með því að draga mann út á djammið eða plata mann í vinnu og því um líkt. en anyway þá er bara hellings búið að vera gerast hjá mér.
ég ákvað það að vera heima allaveganna fram að áramótum. ég er að fara skrá mig í fjarnám í ensku,spænsku,hljóðtækni og heilsufræði.
Ég er eiginlega bara að bíða eftir því að ég fái áfall,eða svona ofþreytu, þetta er ekki eðlilegt,ég er ekki búin að eiga einn rólegan dag síðan fyrstu helgina í apríl og það er sko ekkert að verða neitt rólegt hjá mér á næstuni. Um næstu helgi er það Hríseyjar hátíðinn,svo versló,svo fiskidagurinn mikli,svo sumarbústaður,svo menningarnóttinn,svo afmælið hennar karenar og svo síðast enn ekki síst er það dublinar ferðin.
Já þannig ef einhver vill gera eithvað með mér þá verður hann/hún að hringja bara og panta tíma,fáið samt ekki tíma fyrr en í okt!! :) ;)

verð samt að segja það var bara helv gaman í gær :) skelti mér á ak með kareni og fleirum,var að fara í fyrsta skiptið að djamma þar :) en ég entist nú ekki lengi, ég var kanski í klukkutíma og svo fór ég á dallas,skildi bara kareni eftir.
Enn ég lýg því ekki þegar ég segi að það skemmtu sér allir sem best....allaveganna ég :D og karen :) þeir vita sem vita.
en ég ætla láta þetta gott heita í bili.
Ég er farin að fá mér einn sveittann jóa! :D :P

muniði forvitnin varð kettinum að bana.

Hola!!! ;)Hrefna Katrín Björgvinsdóttir

Jæja þá er maður komin aftur á klakann eftir 2 vikna fjarveru!!! :) Það var yndislegt að komast svona aðeins í burtu. ég ætla nú ekki að fara segja frá öllu strax...er nefnilega að fara norður eftir smá,hef engan tíma til þess að blogga neitt rosalega mikið eins og þessi ferð var. En óhætt er að segja að ég er enþá ógeðslega þreytt eftir ferðalagið heim,það var frekar erfitt!

ég bið bara að heilsa í bili,næst þegar ég blogga set ég inn myndir úr ferðinni!

Kv BóBó ;)
Síđa 1 af 2